Um leikinn
Orðagreining er ókeypis vefleikur í íslenskri málfræði. Nemendur greina orð í heilum setningum — orðflokk, kyn, fall, tölu, tíð, persónu og mynd — og fá svörun um leið. Hann er hugsaður fyrir Chromebook-tölvur og spjaldtölvur í kennslustofunni, jafnt til sjálfstæðrar æfingar og sem sameiginlegur leikur með bekknum á skjávarpa.
Hvernig leikurinn virkar
Setning birtist og eitt orð í henni er merkt. Nemandinn smellir á orðflokkinn og svo á þau einkenni sem námsstigið kallar á — allt með tökkum, ekkert þarf að skrifa. Þegar hann er sáttur smellir hann á Staðfesta.
- Þrjár tilraunir. Við rangt svar kemur fram hvaða hluti þess var rangur („RANGT (kyn) · 2 tilraunir eftir“) svo að nemandinn geti lagað hann. Eftir þriðju tilraun birtist rétta greiningin og næsta orð kemur.
- Aðeins er spurt um einkenni sem orðið hefur. Til dæmis er ekki spurt um tíð sagnar í nafnhætti. Leikurinn greinir eftir því sem BÍN segir um orðið.
- Á miðstigi má velja orðflokka. Á miðstigi má haka við hvaða orðflokka á að æfa (t.d. bara nafnorð og sagnorð) og leikurinn sleppir hinum. Hann velur þá aðeins setningar sem innihalda orð úr þeim flokkum.
Námsstigin
Sama setningasafnið er notað á öllum stigum; það sem breytist er hversu mikið er spurt um hvert orð. Setningar eru merktar eftir þyngd og léttari setningarnar fylgja með á þyngri stigunum.
| Stig | Aldur | Spurt er um |
|---|---|---|
| Miðstig | 10–12 ára | Orðflokk (nafnorð, sagnorð, lýsingarorð, fornafn, atviksorð, samtenging, forsetning, töluorð, upphrópun, nafnháttarmerki) |
| Unglingastig | 13–16 ára | + kyn nafnorða og lýsingarorða, tíð sagnorða |
| Framhaldsskóli | 16+ | + fall og tölu nafnorða, fall, tölu og stig lýsingarorða, persónu, tölu og mynd sagnorða |
| Meistarastig | Ítarleg greining | + tegund fornafna (persónufornafn, eignarfornafn, ábendingarfornafn …) |
Leikgerðir, stig og árangursmerki
Stig. Rétt svar í fyrstu tilraun gefur 100 stig, í annarri 50 og í þriðju 25. Rétt svör í röð margfalda stigin: annað rétt svar í röð gefur ×1,5, það þriðja ×2 og svo áfram upp í ×5. Eitt rangt svar núllstillir röðina. Fullkomin lota er því um 3.200 stig.
Árangursmerki eru veitt fyrir leikinn sem var að ljúka og birtast á lokaskjánum — til dæmis Fullkomin lota (allt rétt í fyrstu tilraun), Í stuði (5 rétt í röð), Óstöðvandi (10 í röð), Seigla (góð röð eftir villu), Eldsnöggur (lota á 90 sekúndum) og Nafnorðameistari (öll nafnorð leiksins rétt). Þau eru ekki geymd á milli leikja — hver leikur byrjar á hreinu borði.
Leiðbeiningar fyrir kennara: sameiginlegur leikur
Sameiginlegi leikurinn virkar eins og Kahoot: þú býrð til leik, nemendur slá inn kóða og nafn, þú byrjar umferð og staðan birtist á skjávarpanum jafnóðum. Engin innskráning, engir notendaaðgangar — hvorki fyrir þig né nemendur. Sömu skref með skjámyndum eru á síðunni Leiðbeiningar, bæði fyrir kennara og nemendur.
- Opnaðu Hýsa leik (hnappurinn Fyrir kennara efst á forsíðunni) og smelltu á Búa til leik. Heiti (t.d. „7. bekkur“) er valfrjálst. Þú færð sex stafa kóða og QR-kóða.
- Settu töfluna á skjávarpann. Smelltu á Stigatafla á skjávarpa; hún opnast í nýjum flipa. Ýttu á F til að birta töfluna á öllum skjánum. Á meðan enginn leikur er í gangi sýnir hún kóðann, QR-kóðann og leiðbeiningar fyrir nemendur.
- Nemendur tengjast. Þeir opna ordagreining.is, velja Taka þátt í leik með bekknum neðst á forsíðunni, slá inn kóðann og nafnið sitt. Einnig má skanna QR-kóðann með spjaldtölvu. Nöfnin birtast hjá þér og á skjávarpanum um leið. Nemendur sjá „Þú ert með!“ og bíða.
- Hreinsaðu til á listanum. Ýttu á × við nafn til að taka það út (t.d. óviðeigandi nafn — nemandinn getur tengst aftur með nýju). Viltu lið? Veldu fjölda og ýttu á Lið; nöfnunum er skipt af handahófi og liðin fá liti. Stig liðs er meðaltal allra í liðinu, líka þeirra sem ekki spila — liðið vinnur með því að fá alla með.
- Veldu umferð. Námsstig, leikgerð og tími. Í leikgerðinni 10 orð er tíminn hámarkstími: umferðin endar sjálfkrafa um leið og allir hafa lokið sínum 10 orðum, svo enginn situr og bíður. Í leikgerðinni eins mörg orð og hægt er spila allir þar til tíminn er búinn. Á miðstigi hakarðu líka við hvaða orðflokka á að finna, t.d. bara nafnorð og sagnorð. Þessu má breyta fyrir hverja umferð.
- Hefja umferð. Allir í biðstofunni byrja sjálfkrafa innan nokkurra sekúndna, á sama námsstigi og fá setningarnar í sömu röð. Þú sérð stigin uppfærast hjá þér og á skjávarpanum á meðan nemendur spila; ✓ merkir þá sem hafa lokið. Nemandi sem kemur seint fer beint inn í umferðina.
- Lok umferðar. Umferðin endar þegar allir hafa lokið (í leikgerðinni 10 orð), þegar tíminn rennur út eða þegar þú ýtir á Stöðva umferð; leik sem er í gangi lýkur þá hjá nemendum og stigin skila sér. Skjávarpinn heldur lokastöðunni. Með hnappnum Ný umferð spilar sami hópur aftur, kannski á þyngra stigi; Loka leik eyðir öllu.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Nemandi endurhlóð síðuna eða það slokknaði á tækinu: hann slær inn kóðann og sama nafn og fær sæti sitt aftur. Umferð sem hann hafði lokið er ekki spiluð aftur.
- Þú endurhlóðst kennarasíðuna: vafrinn þinn man leikinn. Lokar þú flipanum alveg finnur þú leikinn aftur með því að opna síðuna á sama tæki.
- Sama nafnið tvisvar: ef nafnið er þegar í notkun fær seinni nemandinn skilaboð um að bæta við fyrsta stafnum í eftirnafninu, t.d. „Anna K.“ Nemandi sem endurhleður og slær inn sitt eigið nafn þarf stundum að bíða í hálfa mínútu áður en hann kemst inn aftur með sama nafni.
- Netið hikstar: stigataflan sýnir „Samband rofnaði“ og reynir aftur sjálf.
Kennsluhugmyndir
- Upphitun í fimm mínútur. Ein umferð í leikgerðinni 10 orð á miðstigi eða unglingastigi í byrjun tíma. Lokastaðan á skjávarpanum er nóg til að fá alla með.
- Stigvaxandi umferðir. Sami hópur, þrjár umferðir: byrjaðu á orðflokkum, bættu við kyni og tíð, endaðu á föllum. Nemendur finna sjálfir hvar kunnáttu þeirra sleppir.
- Lið frekar en einstaklingar. Liðakeppni með meðaltali dregur úr álagi á þá sem eru óöruggir og verðlaunar hópinn fyrir að allir taki þátt.
- Sjálfstæð æfing. Utan sameiginlegs leiks getur hver nemandi spilað Æfingu á sínu stigi án tímamarka og þarf ekki að skrá sig.
- Ræðið villurnar. Rangt svar segir hvaða einkenni var rangt. Gott samtal eftir umferð: hvaða orð voru erfið og af hverju (t.d. lýsingarorð í hvorugkyni, sagnorð í þátíð).
- Óskir um setningar. Setningasafnið er sameiginlegt og vex; hugmyndir að setningum sem tengjast því sem verið er að lesa í bekknum eru vel þegnar.
Gögn og persónuvernd
- Engir notendaaðgangar, engin innskráning og engin netföng — hvorki hjá nemendum né kennurum.
- Ekkert er vistað á tækjum nemenda. Sjálfstæð æfing skilur ekkert eftir sig.
- Í sameiginlegum leik geymir þjónninn aðeins nöfnin sem nemendur slá inn, lið og stig umferðanna — og eyðir öllu sjálfkrafa 12 klukkustundum eftir að leikurinn var búinn til, eða um leið og kennarinn lokar honum. Fornafn dugar; ekki þarf fullt nafn.
- Vafri kennarans man leikinn sem hann bjó til svo hann haldi stjórninni eftir endurhleðslu. Ekkert annað er geymt í vafra.
Um verkefnið
Orðagreining er þróuð af Bergmanni Guðmundssyni, grunnskólakennara og kennsluráðgjafa á Akureyri. Málfræðigreiningin byggir á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN) frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sem gefin er út með leyfinu CC BY-SA 4.0. Setningarnar eru samdar fyrir leikinn og hvert orð í þeim er greint með BÍN.
Verkefnið hlaut styrk úr Þróunarsjóði námsgagna.
Leikurinn er ókeypis og opinn öllum á ordagreining.is. Ábendingar um villur í greiningu eða hugmyndir að setningum eru vel þegnar.